Elísabet hatar smáa letrið

Sæælar!

29.01.2007 01:19:12 / bjarkijod

Færsla segiði?

Fuck me I´m famous dj-crewið var að spila á jómfrúarballi sínu síðasta föstudag. Veit ekki hvort að tónlistin hafi æst mannskapinn svona upp en allavega var alveg nóg af veseni á þessu balli sem ég frétti reyndar ekki af fyrr en að okkur var sagt að klára ballið klukkan 01:00. Við áttum nú bara að fá eina klst. samtals í spilunartíma en aðal dj ballsins hvarf og við vorum látnir klára. Fólkið var í svo miklu djammi á gólfinu að ég tók til þess bragðs að spila Doomriders til að losna við það, virkaði ágætlega fyrir utan þá sem fýla Doomriders, þeir létu sig ekki vanta á gólfið.

Vona samt svo sannarlega að við fáum að spila aftur því þetta var eitthvað það skemmtilegasta sem ég hef gert, án efa.

Fórum á Mörkina þegar búið var að loka stríðssvæðinu, þar var djammstemningin í mínus miðað við ballið þannig við vorum ekki lengi að beila á því og skella okkur bara heim!

Var að lesa færslu hérna einhversstaðar, þar stóð að svartir hlýrabolir væru málið, er aleg HJARTANLEGA sammála því!


Þetta var einungis upphitun fyrir það sem koma skyldi!


Sést alveg hverjir áttu ballið!


Múúújé!

Takk fyrir mig, bless!

 

» 11 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 01:55:49 / bjarkijod

Þessi helgi

Ætla koma með eina þvingaða færslu =)

Újé beibí það er miðannarfrí.
Tók drykkju með Gústa, Tjalla, Gaua, Jóni, Ólöfu og Ásdísi hjá Gaua í gær og við enduðum á Mörkinni að dansa við kassagítarstrúbadora, ráðum bara ekki við lappirnar á okkur.

Vaknaði í morgun, frekar þunnur þannig að ég fékk mér kókópöffs og sofnaði aftur. Hefur alltaf virkað hingað til. Er ekki mikið búið að ske í dag, er bara búinn að vera passa í kvöld á meðan allir eru á fylleríi, mig langaði hvort eð er ekkert á svona asnalegt fyllerí. Verð að passa fram á sunnudag, en ég er í fríi fram á þriðjudag þannig að mér er svo sem sama!
Vorum að fá okkur nýjan bíl og hann var að renna í hlaðið áðan, tussuflottur, svartur, krómaður og leðraður Nissan Patrol. Þannig að ef einhverjum langar í grænan Trooper, þá höfum við einn til sölu hérna á Furugrundinni.

Hjalti var að pæla í að taka bæjardjamm á morgun, hef samt verið að hugsa og fá bakþanka um það vegna þess að peningaleysið er algjört núna um þessar mundir. Er búinn að vera einstaklega óduglegur við að taka aukavaktir í álverinu og ég átti að fara vinna um þessa helgi í Rvík en pabbi er veikur þannig ekkert varð úr því.

Fór með bílinn minn í skoðun um daginn og fékk svona heví flottann grænan miða á númeraplötuna mína. Þarf að laga pústið og svo er stýrisendinn vinstra meginn ónýtur. Hélt svo að ég fengi meira til þess að gera við en þetta þannig að ég ætla bara að koma honum í viðgerð sem fyrst til þess að geta drullað honum í gegnum skoðun og losað mig við hann í eitt skipti fyrir öll.





Hver er munurinn á þessum myndum?

Svarið er: ég læt vestið líta vel út!

» 9 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 23:57:43 / bjarkijod

Helgin

Helgin búin að vera tussufín, byrjaði á NámuRokki og þar unnu Ypsilon, congratz. Byrjuðum að smakka klukkan 4 og sumir voru orðnir meira en góðir er á keppnina var komið. Tók meira að segja eftir því að áður en klukkan var orðin 7 þá var drengur í röðinni fyrir framan mig dauður, liggjandi á öxlinni á næsta manni. Eftir tónlistarkeppnina fórum við til Birkis og þar eignuðu Bjalli og Tjalli stofudansgólfið, kom með transdiskinn minn og það var bara no turning back! Tókum líka myndaflipp á þetta, gef ykkur sýnishorn á eftir, á samt eftir að redda mér öllum djúsí myndunum. Ballið var fínt, byrjaði gebba snemma en það var allt í lagi, Spútnik gaurarnir rokkuðu langt fram eftir öllu (not), voru samt búnir með öll lögin sem þeir kunnu áður en ballið kláraðist þannig þeir byrjuðu bara upp á nýtt. Eftir ballið var það Olís og svo heim.

Vaknaði á laugardeginum klukkan 10 alveg eiturhress, hef samt ekki hugmynd um af hverju ég vaknaði svona snemma. Fór að keppa í Kópavoginum klukkan 6 og við vorum bara 7 í liðinu. Eini stóri gaurinn okkar var fouled out í byrjun þriðja leikhluta þannig við bara got0wned. Dreif mig upp á skaga og skellti mér í teiti til Gumma, Hallur lét sjá sig og Tjalli var í alveg eins bol og hann, töff? Kom með annan trans disk í þetta teiti og var stofudansgólfið eignað þarna líka, alveg svakalegt. Það var farið í "ég hef aldrei" og það var svo sannarlega skotið, fékk alveg í magann af hlátri þarna. Fórum frá Gumma á Mörkina og aðeins tekið á dansgólfinu þar, svo haldið aftur heim til Gumma. Fékk mér bara lúr þar og vaknaði morguninn eftir og þurfti að skafa helvítis bílinn minn, var minnst að nenna því. En annars alveg kickass helgi bara...

Hérna fáiði smá myndaflippsmyndir

Flottir á því


Með múvin á hreinu


Urðum að taka smá pásu þarna


Svo mætti drengs ferskur til Gumma daginn eftir

En ég er farinn að hátta

Sæææælar!

» 6 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 14:39:15 / bjarkijod

Rvk

Er búinn að vera lana upp í skóla alla helgina (svaalöör) og endaði á því að fara til Rvíkur í gær. Vissi ekkert hvernig ég átti að fara þannig að ég, Bragi og Eva Eiríks joined forces og sönsuðum Togga til að skutla okkur (örugglega lengsta skutl sem hann mun taka, var með mér allann tímann), og við vorum farin út úr Akranes city klukkan 12. Skutluðum Evu á Broddvei og fórum svo í rústpartí til vinkonu Braga. Fórum síðan niður í bæ, þurftum samt fyrst að ýta bílnum hans Togga í gang með áhorfendur og allann pakkann, og ég og Toggi skelltum okkur á barinn. Við vorum að eigna dansgólfið þar í mestu makindum og þá sé ég að það var búið að stela bjórnum mínum. Aldrei myndi ég stela bjór sem væri á hillu hjá dansgólfinu, það er bæði hommaskapur og nasty. Fórum þaðan því þetta var skítapleis og fórum fyrir utan Hverfisbarinn að spjalla við Svenna. Hann var blindblekaður með eitthverja beyglu þarna þannig við hittum Arnar Þór og fórum á Pravda.
Drengs labbaði bara inn eins og hann ætti staðinn.
Fór og eignaði dansgólfið þar líka, fengum alveg nipslip þarna og svona, alltaf gaman að fá nipslip.
Svo þegar klukkan var að verða 6 fannst mér og Togga þetta farið að verða gott, búnir að eigna nóg af dansgólfum á einu kvöldi, verður nefninlega að skilja eitthvað eftir fyrir glötuðu gaurana. Röltum að bílnum hans Togga og viti menn, þurftum að ýta honum í gang, það gekk samt ekki bara við tveir því hann var lagður í brekku og fastur inni í stæði. Fengum þá hjálp frá Reykjavík´s finest (the five-o) og dúndruðum á Söbbvei, rotaðist á leiðinni upp á skaga, Toggi sagðir ætla kýla mig í magann ef það myndi gerast, man ekki eftir neinu höggi allavega. Góð rvíkur ferð vafalaust.

Er kominn aftur til míns heima, Garðabraut 1, Kfum-k húsið.
Ætla halda áfram að vera alveg mellu...

Sææælar!

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 23:02:11 / bjarkijod

Cannerinn

Er hjá Gaua núna, hann þurfti að skjótast fyrir einum og hálfum tíma, hefur ekki sést síðan drengurinn.

Var á kaffihúsakveldi áðan og það var svakalegt, vægast sagt. Djúpa laugin tryllti lýðinn alveg vafalaust og svo kom FLIIIPPPPP myndband frá vistinni, þeir eru svo ruglaðir þarna á vistinni, skil ekki hvernig þetta er hægt sko. Þeir tóku meðal annars rúm og henntu því út á umferðareyju, HAHAHAHA fokksjitt... Það var alveg fyndnara þegar Fjölnir hrækti upp i loftið í skólanum og að horfa á alla labba undir því.
Mér var sagt að þetta ætti að vera til klukkan hálf ellefu eða eitthvað álíka en það var til kortér yfir níu, svo mikið hafði fólkið upp á að bjóða. Var eitthver reol keppni til klukkan ellefu eða álíka, beisik?

En ég er bara geðveikt mikill djammari að hlusta á 24 mínútna lagamix með Darude, það er alveg kickass! Þetta er jafnmikil geðveiki og að vera á vistinni maður, sjitt!

Var að spjalla við Svenna áðan, ákváðum að taka bæjardjamm á þetta á næstu helgi, hef ekki tekið svoleiðis síðan um menningarnótt, og þar áður var það þegar ég og Tjalli rokk gerðum allt vitlaust á ólíver alveg ages ago. Verður gaman að taka bæjardjamm, líka langt síðan maður hitti Svenna kallinn, bara síðast á Danske dage í Stykkishólmi í ágúst. Svo verða Jamie´s star að spila hérna á föstudaginn, spurning um að kíkja á Gulla og félaga en þeir eru að túra með Sign, veit ekki hvort það sé beisik félagsskapur fyrir þá samt. Svenni ætlar allavega að kynna mig fyrir skemmtilegum skemmtistöðum í höfuðborginni.

Hef bara ekkert meira að segja, farinn að hlusta á Darude!

Sææælar!

» 4 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 22:22:38 / bjarkijod

MinnSirkus

Langaði bara svona að auglýsa það að kjéppinn er kominn með MinnSirkus síðu, http://bjarkijod.minnsirkus.is - Tjékkið á þessu.

Er samt mjög lítið búið að gerast hjá mér upp á síðkastið, lan alltaf beisik hjá Gaua í KFUM-K húsinu, reyndar er núna öll starfsemi byrjuð hjá samtökunum þannig að húsið er oftar en ekki fullt af einstaklingum í TTT og þess háttar; Töff, töfrandi og taktfast!
Fór á Mörkina um helgina, getum bara kallað þetta Pólland núna, svakalega stór prósenta þeirra sem stunda þennan stað útlenskir. En allavega þá ætla ég að halda áfram að lana, nenni ekki þessu blogg standi eins og er, þarf að fara í Canner.

Sææælar!

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.09.2006 00:46:25 / bjarkijod

USB kæli förnis

Ég, Hjalti og Gústi fórum í bæinn í dag til að sækja pabba hans Hjalta á Reykjavíkurflugvöll. Gústi vildi einnig versla í Kringlunni og hitta pabba sinn yfir bolla þannig að við lögðum af stað frekar snemma. Gústi verslaði sér einhvað stöff í Smash á geðveikt mikinn pening og vildi síðan fara niður í BT til að kaupa sér tölvuleik á 5000 krónur. Við fórum fyrst á Cafe Blöö eða hvernig maður ber þetta fram í kringlunni og spjölluðum við pabba hans Gústa yfir góóóðum bolla. Þegar við komum í BT náði Gústi í leikinn og svo til að geta spilað hann þurfti hann að kaupa sér tveggja mánaða "game-card" á auka 2500 krónur. Hann vildi spila geðveikt mikið og ætlaði því að fá sér tvö þannig. Samkvæmt mínum útreikningum gerir það þá 10.000 krónur fyrir fjögurra mánaða spilun af tölvuleik. Ég og Hjalti náðum sem betur fer að tala hann ofan af þessu.

Við misstum okkur frekar í BT og fórum í nörda-gadget svæðið þarna, keypti mér svona þráðlaust dót til að spila ípod í bílnum mínum, keypti mér líka stálmúsarmottu (fyrir CS) og einnig svalasta gadget sem ég hef nokkurn tíman fundið.
Þetta heitir "Cool-It-Chiller" og þetta tengir maður í USB tengið á tölvunni sinni og geymir dós af gosi eða öli og það helst kalt allann tímann sem það er þarna á.


Hérna er mynd af því án dósar


Og hérna er ein með dósinni á.
Glöggir taka eftir því að þegar þessi mynd er tekin (á símann minn btw.) þá er ég þegar búinn með tvær svona dósir, bara vegna þess hversu töff þetta tæki er...

En er aftur kominn á lan hjá Guðjóni og því er þetta vel við hæfi, kælidótið þ.e.a.s.

Langaði bara svona að monta mig yfir tækinu mínu...
Sæææælar!

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 18:27:42 / bjarkijod

Gestabók

Bara koma því að svona, Gústi fær alveg massiv respekt fyrir kvittunina í gestabókina hjá mér. Vill bara fá svona kvittanir, eitthvað töff.. Þrjú rokkprik fyrir Gústa!

Ég bað samt aldrei um kvittanir, en ef þær eru svona töff þá megiði koma með þær í tonnatali..

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.09.2006 18:30:04 / bjarkijod

Jahá

Fór á tónleika í gær, Sköllfest í Hellinum. Ég og Hjalti gerðum okkur dag úr þessu, fórum í Kringluna, keypti mér bling og svona. Tónleikarnir voru bara ógisslega næs, en það var viðbjóðslega heitt þarna. Alltaf þegar við vorum að koma úr sígó þá löbbuðum við upp stiga og í stiganum fylltust gleraugun hjá Hjalta alltaf af móðu og þá var ennþá smá vegalengd í salinn þar sem tónleikarnir voru, fáránlega heitt. Fórum á Söbbvei og svo heim. Þurfti að hlusta á ljúfa tóna Cat Stevens til þess eins að geta sofnað, var búinn að hlusta á svo mikið af þúngarokki.

Svo var planið fyrir daginn að fara í skólann, leggja mig í klst., fara í bekk ljósanna og svo hanga með strákunum og jafnvel eitthvað öl en nei, ég var vakinn í mínum einnar klst. lúr og beðinn um að passa í kvöld. Komst ekki einu sinni í ljós, frekar glatað.

Svo er þetta Septemberfest á morgun, örugglega frekar glatað drasl þar á ferðinni, blindblekaðir fótboltaplebbar og Sálin hans Jóns míns, minnst beisik blanda sem ég veit um.

En kallinn er allavega gataður núna, þangað til næst...

Sæææælar!

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 10:12:44 / bjarkijod

Góðann daginn..

Jú góðann og blessaðann daginn.

Við strákarnir erum búnir að vera að lana núna og það verður tekið alveg sérstaklega mikið á laninu um helgina, lýst geðveikt vel á það, Gústi kominn í helgarfrí og hann mun eyða því öllu með okkur í tölvunni.

Ég fór á American Style í gær í afmælismat með bróður mínum sem varð árinu eldri í fyrradag og pantaði mér tjísbörger, það eru alveg geeeðveikt góðir börgerar þarna. Maður er orðinn vanur Hróa eða Skútubörgerum en þessir fara með þetta á annað level, alveg miklu betri. Ég dreif mig síðan upp á skaga til að ná smá lani áður en Magnavaka byrjaði upp í skóla um kvöldið. Mér var boðið öl og ég þáði það auðvitað eins og sannur herramaður. Þetta endaði í aðeins meira en bara einum öl hjá mér og Hjalta í gær, er frekar vafasamur núna. En Sölvi þurfti að fara að vinna í morgun klukkan 7 þannig að hann hefur það vonandi verr en ég.

En það er staðreynd, Magni er ekki að fronta Súpernóva, sem er kannski fínt því Tommy Lee er háður geðveikt mikið af eiturlyfjum, Jason Newsted að drepast úr þunglyndi og Gilby Clarke er fyrrverandi secondary gítarleikari hjá Guns ´N Roses nr.2. Hann er vonandi bara búinn að vekja nógu og mikla athygli á sér núna til að geta gert eitthvað betra heldur en Súpernóva og Á Móti Sól. Heyrði einmitt auglýsingu í útvarpinu um daginn þar sem það voru spiluð nokkur Á Móti Sól lög og síðan var spurt: "Viltu heyra þetta ógeð? Mundu þá eftir að kjósa Magna svo að þú þurfir ekki að hlusta á þennan viðbjóð aftur" (eitthvern veginn svona, þetta var allavega pointið með henni) hló samt alveg frekar mikið þegar ég heyrði þetta..

En ég er farinn að reyna að gera eitthvað, veitt ekkert hvað ég er að gera hérna

Sæææælar

» 4 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 12:50:38 / bjarkijod

Jack Live

Ég, Axel og Lexi fórum á Jack Live á föstudaginn, Mínus steig á stokk og Krummi sagði frá því að gamla stöffið þeirra væri byrjað að veita þeim innblástur, þannig að ég bíð spenntur eftir nýju dóti frá þeim. Kannski að það verði eitthvað í líkingu við Johnny eða Bobby, þeir tóku einmitt Kolkrabbann sem að mig hefur langað að sjá síðan ég heyrði það fyrst í 8. bekk. Entombed voru alveg kickass, hlustuðum á Uprising á leiðinni á tónleikana þannig að maður var kominn í gírinn.
Við komum upp á skaga um þrjú leytið og náðum við Baldvin síðustu tíu mínútunum á Mörkinni og voru þær svo sannarlega þess virði að fara þangað...(yup). Fórum síðan í bílskúrinn hjá Alla og ég var þar til klukkan hálf sex. Átti að mæta á æfingu klukkan 10 um laugardagsmorguninn en það var ekki alveg að meika sens þannig að ég svaf aðeins lengur.
Fór til Gaua um eitt leytið næsta dag og lönuðum við í könter langt fram eftir kvöldi, Ingi var einnig kominn og við skemmtum okkur konunglega. Fórum heim til Kára Víkings í mesta rústpartí sem ég hef lent í. Ég fór þangað með Gaua og Inga, eftir hálftíma var annar farinn heim "þreyttur" og hinn á leiðinni í bæinn án þess að láta nokkurn mann vita. Ég endaði semsagt á því að fara bara heim og í vinnu daginn eftir.

Ég sveik orð mín hérna í fyrri færslu með að fá mér ekki Jack því að Mínus voru geðveikt töff á því og buðu öllum í salnum upp á Jack í kók, ég varð náttúrulega að skella mér á einn svoleiðis.

Ég held að Gústi sé búinn að taka við af mér sem ping-pong meistari miðað við sögur sem fara af honum á föstudaginn. Ég er samt ennþá yfir í einvíginu við Gaua 18-2. Vonandi að lanið haldi áfram núna, verðum kannski nógu og margir til að geta farið að einbeita okkur að almennilegri könter spilun.

En ég hef ekkert meira að segja

Sææælar

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 22:59:38 / bjarkijod

Pítsu pantanir

Ég hef hér með ákveðið að hætta að verlsa við einn veitingastaðinn hér á Akranesi, pantaði mér þar pítsu á miðvikudagskvöldið klukkan 7, það var sögð hálftímabið í flatbökuna og allt í góðu með það. En klukkan 19:50 hringi ég aftur bara til að tjékka á þessu og spyr símastelpuna hvar pítsan sé niður komin. Hún kallar eitthvað inn í eldhús og spyr hvað það sé langt í hana og henni er sagt að það séu 45 mínútur í að ég fái pítsuna í mitt hús.
Þetta hefur verið alveg fáránlega stór pítsa þar að það tekur 50+45 mín = 95 mínútur að henda álegginu á hana og setja hana í ofn. Aldrei verið jafn hneykslaður á minni lífsleið. Var ekki lengi að afpanta þetta og sansa mér minn hafragraut. En mig langaði bara svona að létta þessu af mér.

Annars er Jack Live kvöld á morgun á NASA þar sem að Entombed munu stíga á svið við mikinn fögnuð, Mínus mun hita upp við ekki jafn mikinn fögnuð. Þetta verður fínt, langt síðan maður hefur verið í Reykjavík til að gera eitthvað. Reikna samt ekki með því að fá mér Jack Daniel´s þarna þótt að þetta sé Jack Live kvöld vegna ofneyslu á þessum drykk eitt tiltekið kveld. Afleyðingarnar voru derhúfuæla, druslur sem vildu ekki þrífa húfuna og þess háttar sóðaskapur..

En þetta verður ekki lengra í bili

Sæææælar

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 20:17:32 / bjarkijod

Hryllingur

Ok váááá, er að horfa á The Hills Have Eyes og ég er núna ein taugahrúga. Djöfull vissi ég ekki að það væri hægt að gera svona svakalega hræðilegar myndir. Ég er að skjálfa núna, sit inni í herbergi með öll ljós kveikt og ég er eins og lítil hrísla hérna í tölvustólnum. Ég er orðlaus, ef þið eruð ekki búin að sjá hana ekki lesa lengra því hér kemur hérna spoiler
******Spoiler******

Þegar það er kveikt í pabbanum og gaurarnir fara inn í hjólhýsið, ég hélt að ég yrði ekki eldri. Byrjuðu að nauðga stelpunni, drápu mömmuna og konu gaursins, ég var að fá taugaáfall. Vondu kallarnir eru farnir núna en ég reikna með að púlsinn hjá mér sé hættulega hraður.

******Spoiler-búinn******

Verð að fara út á pall í reyk, váááááá

Vill einnig þakka fyrir næstum því góðar viðtökur í endurkomu minni inn í bloggheiminn...

Sææææælar

» 6 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 21:43:49 / bjarkijod

Færsla í´essu?

Jamjamjam, eftir góða sumarpásu hef ég ákveðið að snúa aftur í heim bloggsins (veit samt ekki hversu lengi ég nenni því) og mun því reyna að henda inn færslum af og til.

Fór til USA í sumar, var alveg vangefið heitt og óþægilegt. Fór í Disneyland og var bara geðveikt mikið í túrismanum, það var samt eitt sem stóð upp úr. Það var eiginmaður frænku minnar þarna úti. Hann heitir Raúl, er Mexíkani, með geðveikt yfirvaraskegg, gengur í skyrtum með efstu töluna hneppta, síðum stuttbuxum og háum hvítum sokkum. Alveg mest í svona "EssEI" sem ég hef nokkurn tíman séð.
Fórum líka til Las Vegas og ég áttaði mig á því að ef það væru ekki spilavíti eða strippbúllur þarna þá væri þarna engin byggð. Voru annað hvort bara risahótel eða slísí strippbúllur.
Ég fór í eitt innanlandsflug þarna úti og hef ég aldrei verið jafn hræddur um mitt litla líf, það var tveggja tíma töf á fluginu vegna þess að það var eitthvað drasl bilað í vélinni, en flugstjórinn okkar, hann Johnny Jones eins og hann kynnti sig, sagði að það væri allt í lagi því það væru tveir aðrir svona í vélinni. Mér gæti ekki verið meira sama um hversu margir það voru eftir en víst að það voru þrír til að byrja með þá eiga þeir væntanlega að vera þrír áfram. Var svo ekki ánægður með kúrekann (hann var meira að segja með hreim) sem var við stjórnvölin.

Er byrjaður aftur í skólanum og sæki þar íslenskutíma meðal annars fjórum sinnum í viku, hann Jón Gunnar kennir okkur þar. Einn ónefndur Borgnesingur þurfti að sinna kalli náttúrunnar þegar kortér var búið af tímanum og um leið og hann var farinn út missti Jón Gunnar út úr sér "afskaplega leiðinlegur nemandi". Hann fattaði strax að hann var að hugsa upphátt og byrjaði að tala um ágæti nemandans en að hann gæti verið erfiður. Alveg dýrslega fyndið að sjá svipinn á honum þegar hann fattaði hvað hann hafði sagt.


Reikna með því að líta svona þegar ég verð stór, ætla nefninlega að skrá mig í leyniþjónustu Björns Bjarnasonar. Það verður alveg kickass. Hlakka svo til að vera fullskeggjaður...

En ég er byrjaður aftur í baskaranum, ætla að losa mig kútinn sem er búinn að safnast saman í öllu eyrðarleysinu. Verður stuð að spila í 2. deild í svona rólegheitum í vetur, allavega að fá eitthverja hreyfingu í líkamann minn. Var einmitt æfing áðan og djöfull var tekið á því, alveg búinn á því núna.. Það er samt eitt sem ég verð að setja út á það að iðka íþróttir, maður gerir sér ekki alltaf grein fyrir því en þegar maður er í íþróttabolum þá eru þeir bara í missjóni að meiða geirvörturnar alla æfinguna. Svo er maður bara handónýtur í þeim næstu daga, gat ekkert notað þær alla síðustu viku, en það er ekki eins og það séu eitthvað mikil not fyrir þær anyways þannig að ég hætti þessu röfli bara...

En ég segi bara sææææælar!

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 09:34:26 / bjarkijod

Doooooomriders

Fór í bæinn með Hjalta og Baldvini á þriðjudaginn og við náðum einu upphitunarbandi, I Adapt. Þeir voru bara helvíti góðir, en svo komu Doomriders á svið. Alveg svakalegt gigg hjá þeim, hristi hausinn í svona 45 mínútur eða svo. Söngvarinn pöntaði gaur út í salinn og reif kjaft við einhverja fulla gaura þarna fremst, respect fyrir það. Byrjuðu á Black thunder sem þeir hefðu mátt taka seinna, soundið var ekki orðið alveg nógu beisik til að byrja á svona slagara. En já, Doomriders fá 5 stjörnur af 3 mögulegum.

Fórum á Mörkina í gærkveldi vegna afmælis Hjalta Heiðars Allanssonar (samkvæmt Séð og heyrt), þegar var klukkan var orðin tólf rigndi inn afmælisgjöfum á borð við plast af sígarettupakka, eldspýttnapakki, rifnar kvittanir, sígarettur, sígarettusmókur , 2 Doritos flögur, klink o.s.frv. Honum fannst það ekkert jafnsniðugt og okkur sem lögðum okkur fram við að gefa honum þessar hjartnæmu, persónulegu gjafir. Svo til að hressa hann við vegna þess að hann fékk ekki eitt einasta afmælis-sms (eina aksjónið á símanum var "battery low" þá skutumst við á barinn. Jón gaf honum bjór, ég gaf honum Gajol skot, Bragi tekíla og Gummi Reyka Vodka. Ég, Gústi og Haukur Óli gengum út klukkan 00:45 og klukkan 00:47 var Hjalti á rassgatinu (hef ég heyrt frá traustum heimildarmanni). Þetta verður semsagt ekki besti afmælisdagur hjá honum dag, hann er allavega ekki mættur ennþá í skólann.
Vonandi vaknar hann áður en dagurinn klárast..

Sjáumst!

» 0 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Gaman, gaman